Kosning um framtíð piparhúðaða Nóa kroppsins hefst á Facebook-síðu Nóa Síríus á morgun. Kosningin stendur yfir í viku. Þetta kemur fram á mbl.is.
Sjá einnig: Piparnammi er í tísku á Íslandi en stenst bragðið væntingar? Við smökkuðum það allt
Piparhúðað Nóa kropp átti aðeins að vera í boði í sumar en hefur slegið í gegn. Silja Mist Sigurkarlsdóttir, vörumerkjastjóri hjá Nóa Síríus, segir í samtali við mbl.is að piparhúðaða Nóa kroppið sé á góðri leið með að taka fram úr öðrum vörum framleiðandans í vinsældum.
Hún segir að piparhúðaða Nóa kroppið vera í boði í takmörkuðu magni og aðeins í sumar en að það hafi nú verið endurskoðað í ljósi vinsældanna.
Örlög piparhúðaða Nóa kroppsins ráðast í næstu viku.