Snorri Björnsson tók Snapchat skrefinu lengra í gær. Til stóð að hann myndi keppa í hnébeygju við kraftlyftingamanninn Þröst Ólason og við fengum að fylgjast með undirbúningnum á Snapcaht.
Byrjum á byrjuninni. Ef þú ert ekki með Snorra á Snapchat þá er notendanafnið snorribjorns. Og svo er fyrirvari. Snorri fékk hjálp við söguna, sem má finna í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan. Tjarnargatan vann hugmyndavinnu með honum ásamt því að framkvæma þetta fyrir Landsbankann en markmiðið var að benda á það sé hægt að kaupa allt milli himins og jarðar með Aukakrónum.
Eins og oft áður, þá hófst sagan á fundi með Ívari Guðmunds
Og Texas-Maggi fékk líka að leggja orð í belg
Hafið í huga að við erum að einfalda þetta. Til að njóta til fulls þurfið þið að horfa á söguna hér fyrir ofan. Þið finnið þetta myndband hvergi annars staðar en á Nútímanum.
Og hann keppti í hnébeygju svo það sé á hreinu. Við erum að draga saman aðdragandann.
En Snorri hitti svo Crossfit-kappann Björgvin Karl. Hann var ber að ofan
Og fleiri Crossfit-kappar mættu á svæðið. Hér höfum við Söru Sigmundsdóttur, sem sýndi Snorra hvernig fagfólk drekkur pre workout-drykki fyrir æfingar.
Búmm!
Og auðvitað mætti Gunnar Nelson líka á svæðið
Sjáðu alla söguna í spilaranum hér fyrir ofan. Annar eins metnaður hefur varla sést á Snapchat. Þetta hlýtur að vera Íslandsmet.