Auglýsing

Tveir atvinnusnappar á landinu í tvo daga, hafa unnið með Disneyland og Apple

Atvinnusnappararnir CJ og Sallia Goldstein eru staddar á Íslandi. Þær hafa unnið með stórum fyrirtækjum á boð við Disneyland, Apple, FOX Broadcasting.

Þær eru ráðnar til þess að setja fram stílrænan sem og sjónrænan tón á Snapchat-sögur fyrirtækjanna og nota þær til þess kunnáttu sína í því að teikna myndir í appinu.

CJ og Goldstein verða á landinu í tvo daga áður en þær halda til London þar sem þær fara á Snapchat ráðstefnuna snaphappen.

Þær ætla að sjálfsögðu að taka upp skemmtilegt efni á landinu á Snapchat. Fyrir áhugasama er hægt að fygjast með þeim á Snapchat undir nöfnunum operamericano og Salliasnap.

Hér má sjá nokkar myndir af verkum þeirra

operamericano

Sallia Goldstein segir í samtali við Nútímann að Ísland sé æðislegt og hún elski norræna andrúmsloftið. Á sama tíma sé landið töff og ævintýralegt. „Eftir aðeins nokkra klukkutíma á landinu var ég er strax heilluð af landslaginu, menningu og tungumálinu. Og hversu mikið allt kostar,“ segir hún.

Snapparinn CJ segir að sköpunargleði þeirra og þessi listræna sérstað sé lykillinn að velgengni á þessum vettvangi. „Þessi blanda hjálpar okkur við að skapa skemmtilegt og grípandi efni fyrir fyrirtæki sem draga að sér mögulega viðskiptavini,“ segir CJ.

„Snapchat er nokkuð takmarkað forrit og sögurnar mínar einkennast af því þegar ég læt reyna á möguleika Snapchat. Ég finn þannig út nýjar leiðir til þess að búa til „stuttmyndir“ í formi Snapchat,“ bætir hún við.

Sallia Goldstein segir Snapchat-söguna síðan í dag vera mjög sérstaka þar sem hún vildi tengja tungumál landins inn í söguna. „Í mínu tilviki er ég meiri á listrænu hliðinni en að tala,“ segir hún.

Flestar Snapchat-sögurnar mínar eru mjög myndrænar. Það var mjög flókið að vinna með íslenska tungumálið, það er virkilega flókið.

„Sögurnar mínar á Snapchat litast af nördalegu hliðinni minni. Þær koma yfirleitt fyrir tilviljun, engin innblástur, bara skrýtna ég,“ segir Sallia sem er verkfræðingur að mennt og segir það nýtast vel í Snapchat-gerð sinni.

CJ segir Snapchat ráðstefnuna í London vera sína fyrstu. „Ég veit ekki meira en það að þarna koma saman um 25 atvinnusnapparar. Þar á eftir að verða til framúrstefnulegt Snapchat-efni.“

Hægt er að finna fleiri myndir af verkum þeirra hér:
http://www.operamericano.com
https://www.instagram.com/salliasnap/

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing