Manst þú eftir atriðinu í kvikmyndinni Quantum of Solace þar sem James Bond var numinn á brott, leiddur inn í lyftu og hendur hans bundnar saman fyrir aftan bak með strekkibandi úr plasti? Bond tókst auðvitað að fella óvininn, grípa hníf og losa bandið. En hann er vissulega Bond. Þetta er erfiðara fyrir okkur hin.
Á YouTube er víða að finna myndbönd þar sem sjá má fólk losa sig úr strekkibandi. Eitt þeirra hefur vakið sérstaka athygli en þar má sjá litla stúlku losa hendur sínar úr strekkibandi á innan við mínútu með því að nota skóreimar. Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.
Myndbandið var birt 1. september og er búið að horfa á það oftar en 60 milljón sinnum.
Það var mamma hennar sem birti myndskeiðið. Hvetur hún foreldra til að kenna börnunum sínum að gera eins og dóttir sín, ef þeim yrði rænt einn daginn.