Maðurinn sem handtekinn var í Vestmannaeyjum á laugardag er grunaður um að hafa brotið kynferðislega á konunni sem fannst meðvitundarlaus í húsagarði rétt hjá öldurhúsi í bænum. Þetta kemur fram á mbl.is.
Sjá einnig: Einn yfirheyrður vegna líkamsárásar í Eyjum: Kona fannst nakin með mikla áverka
Nútíminn greindi frá því í gær að maðurinn hafi verið yfirheyrður vegna rannsóknar lögreglunnar í Vestmannaeyjum á líkamsárás í bænum um helgina. Enginn er í haldi lögreglu vegna málsins en lögreglan hefur nú staðfest að grunur leiki á að maðurinn hafi brotið kynferðislega á konunni.
Stundin greindi frá því að kona á fimmtugsaldri hefði verið flutt í skyndi með sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur á laugardagsmorgun.
Samkvæmt heimildum Stundarinnar fannst konan meðvitundarlaus í húsagarði rétt hjá öldurhúsi í bænum. Konan er sögð hafa fundist nakin og með mikla áverka, meðal annars á höfði. Telja heimildarmenn Stundarinnar að konan hafi höfuðkúpubrotnað.
Nútíminn hafði samband við lögregluna í Vestmannaeyjum sem vildi ekki staðfesta frétt Stundarinnar. Yfirlögregluþjónn sagði aftur á móti að til rannsóknar væri líkamsárás sem var gerð um helgina. Einn hefur verið yfirheyrður vegna málsins en enginn er í gæsluvarðhaldi vegna þess.