Jackson Millarker er átta ára gamalt transbarn og leikur í væntanlegum þætti Modern Family. Leikstjórinn Ryan Case, tilkynnti þetta á Twitter. Hún og Jesse Tyler Ferguson, leikari í þáttunum, segjast vera virkilega stolt af þættinum.
So proud to have directed this amazing kid ❤️ "Modern Family" Casts First Openly Transgender Child Actor https://t.co/pwGbgnOwJY
— Ryan Case (@film114) September 26, 2016
Þau hafa fengið mikið lof frá foreldrum transbarna á samfélagsmiðlum
As a mom of a trans child THANK YOU- for giving a voice to and raising awareness for the trans community and allies!
— Heidi (@UpNorthNyquist) September 27, 2016
As the parent of a transgendered child, I want to thank you for doing this episode. ?
— Deborah (@vanbbqmama) September 27, 2016
Jackson leikur nýjan vin hennar Lily, dóttur Cam og Mitchell, í þættinum sem verður sýndur í Bandaríkjunum á morgun á sjónvarpsstöðinni ABC. Þátturinn heitir „A Stereotypical Day“ eða staðalímyndardagur á íslensku.