Auglýsing

Pitt vill ekki draga athygli frá myndinni, mætir ekki á frumsýningu Voyage of Time

Brad Pitt mun ekki mæta á frumsýningu heimildarmyndarinnar Voyage of Time vegna fjölskylduaðstæðna. Hann leikur í myndinni sem fjallar um fæðingu heimsins.

Líkt og áður hefur komið fram óskaði Angelina Jolie eftir skilnaði við Pitt fyrir rúmri viku. Hún hefur farið fram á fullt forræði yfir börnum þeirra sex en Pitt vill að þau skipti forræðinu jafnt.

Sjá einnig: Adele er alveg sama um skilnað Jolie og Pitt, finnst skrýtið að hann rati á forsíður

Í tilkynningu sem Pitt sendi frá sér vegna fjarveru hans segist hann ekki vilja draga athygli frá myndinni með því að mæta á frumsýninguna.

Jennifer Aniston, sem áður var gift Pitt, hefur ekki tjáð sig um skilnað Pitt og Jolie. Það hefur núverandi eiginmaður hennar, Justin Theroux, aftur á móti gert.

Hann sagði að í ljósi þess að hann sé skilnaðarbarn viti hann að þetta séu hræðilegar fréttir fyrir börnin. „Það er allt sem hægt er að segja,“ sagði hann í samtali við Business Insider.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing