Búist er við því að úrslit í formannskjöri Framsóknarflokksins liggi fyrir um kl. 15. Kosningin hefur dregist á langinn en fyrst var talið að henni myndi ljúka um kl. 12.30, eða um hálftíma eftir að hún átti að hefjast.
Á vef RÚV kemur fram að kosningunni sé lokið og verið sé að telja atkvæði. Formaðurinn þarf 50 prósent atkvæða til að ná kjöri – ef ekki þarf að kjósa aftur.
Líkt og áður hefur komið fram eru þeir Sigurður Ingi Jóhannsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í framboði til formanns.
Sjá einnig: Lilja vill líka vera varaformaður Framsóknar
Lilja Dögg Alfreðsdóttir sækist eftir varaformannsembættinu. Það gerir Eygló Harðardóttir einnig en þó aðeins ef Sigmundur Davíð nær ekki kjöri.
Flokksþing Framsóknar fer fram í Háskólabíói um helgina.