Eygló Harðardóttir dró framboð sitt sem varaformaður Framsóknarflokksins til baka í dag. Hróp voru gerð að henni þegar hún tilkynnti þetta á flokksþingi Framsóknar. Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.
Eygló sagði í ræðu sinni mikilvægt að leita sátta og reyna að sameina flokkinn. „Kjaftæði, þú ert ömurleg. Þú ert ömurlegur ráðherra!“ var þá hrópað úr salnum.