„Þessi bíll er með alveg rosalega gott karma,“ segir Sigrún Jónsdóttir, eigandi bleikasta bíls landsins. Elísabet Inga, hitti Sigrúnu, og fékk að skoða bílinn, sem er af tegundinni Daihatsu Feroza. Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.
Bíllinn er ekki bara bleikur að utan, hann er bleikur að innan og vélin er meira að segja bleik. Sigrún keypti bílinn á Bland.is og segist vekja mikla athygli í umferðinni.
Seljandinn sagði að bíllinn væri brandari sem gekk aðeins of langt. „Það er líka gott að maður týnir aldrei bílnum, þegar maður fer í Bónus eða eitthvað,“ segir hún.