Elding sem sló niður í þotu Wow Air í morgun náðist á myndband. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan. Halldór Guðmundsson hjá Allt hreint náði þessu myndbandi.
Á mbl.is kemur fram að þetta hafði engin áhrif á flugvélina enda þotur búnar sérstökum eldingavörum. „Engar upplýsingar hafa borist um að farþegar hafi fundið fyrir óþægindum enda ekki óalgengt að þotur fljúgi í gegnum slík veðrabrigði,“ segir í frétt mbl.is.