Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar-og menntamálanefndar, mætti með nýfætt barn á brjósti í ræðustól Alþingis þegar hún kvaddi sér hljóðs í atkvæðagreiðslu um útlendingalögin í dag.
RÚV greindi fyrst frá málinu. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.
Helga Bernódussyni, skrifstofustjóra Alþingis, er ekki kunnugt um að alþingismaður hafi áður tekið barn með sér í ræðustól.
Unnur Brá og kærasti hennar, Sigurður Ingi Sigurpálsson, eignuðust dóttur 1. september.