Auglýsing

Eiður Smári fór á kostum á Twitter, grínaði í Jose Mourinho við góðar undirtektir

Array

Eiður Smári Guðjohnsen fór á kostum á Twitter á meðan leikur Chelsea og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta fór fram í gær. Chelsea valtaði yfir United og fór með sigur af hólmi, 4-0.

Eiður Smári horfði á leikinn og skemmti sér vel á Twitter á meðan. Þegar það var ljóst í hvað stefndi sagði Eiður ljóst að Jose Mourinho, fyrrverandi stjóri Chelsea og núverandi stjóri Manchester United gæti ennþá náð því besta úr Chelsea.

Mourinho var afar farsæll með Chelsea og hampaði mörgum titlum. Viðbrögðin við tísti Eiðs voru gríðarleg. Það var birt í umfjöllun BBC og þegar þetta er skrifað er búið að endurtísta því rúmlega 32 þúsund sinnum.

Eiður kom á framfæri skömmu síðar að hann dáir ennþá Mourinho, þrátt fyrir spaugið.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing