Vöðvatröllið Rich Piana, fyrrverandi tengdasonur Íslands, er kominn með nýja kærustu. Hún heitir Chanel Renee en þau voru par í tvö og hálft ár áður en Rich byrjaði með Söru Heimisdóttur.
Rich og Sara gengu í það heilaga árið í september í fyrra og en hjónabandið vakti mikla athygli hér á landi. Svo mikla að Rich komst í skaupið þegar Steindi nefndi hann á nafn í lokalaginu. Hann kom reyndar ekki sjálfur fram í myndbandinu við lagið en í staðinn var kraftakarlinn Magnús Bess fenginn til að leika hann.
Nútíminn fjallaði um brúðkaupið sem fór fram í Las Vegas og var mikið sjónarspil en þau fengu sér meðal annars húðflúr hvort öðru til heiðurs. Nútíminn hefur svo reglulega fjallað um þau en Rich birti reglulega myndbönd á Youtube sem sýndi daglegt líf þeirra hjóna. Rich á stóran aðdáendahóp og er með hundruð þúsunda fylgjenda á Instagram og Youtube.
Rich og Sara skildu í sumar og skilaboðum til aðdáenda sinna á Instagram sagði Rich að líf þeirra hafi verið ævintýralegt. „En eins og öll pörum þá greinir okkur á. Það var því sameiginleg ákvörðun að þetta væri það besta í stöðunni,“ sagði hann.
En það er skammt stórra högga á milli. Í október kom fram á vef DV að Sara Heimisdóttir væri komin aftur á fast og nú hefur Rich einnig fundið hamingjuna á ný. Nýja kærastan heitir Chanel Renee og hefur meðal annars starfað sem fyrirsæta og sem gjafari í Las Vegas.
Rich og Renee héldu upp á hrekkjavökuna í byrjun vikunnar
Rich og Renee voru áður saman og lét hún húðflúra á sig nafnið hans. Hún lét síðar fjarlægja flúrið og birti myndbönd um það á Youtube
https://www.youtube.com/watch?v=nHY1Sgh3iEI
Spurning um að endurnýja flúrið?