Brad Pitt vill fá sameiginlegt forræði yfir börnum hans og Angelinu Jolie, þeim Maddox, Pax, Zahöru, Shiloh og tvíburunum Knox og Vivienne. Þetta kemur fram á vef fréttastofu NBC.
Jolie sótti um skilnað fyrir tveimur mánuðum og fór fram á fullt forræði yfir börnunum. Brad Pitt hefur verið sakaður um að beita börnin ofbeldi en atvik sem átti sér stað í borð um flugvél, milli Pitt og Pax, elsta sonar hans og Jolie, er nú rannsakað af félagsmálayfirvöldum í Los Angeles.
Pitt neitar að hafa beitt börnin ofbeldi. Í september náðu Jolie og Pitt tímabundnu samkomulagi um að Pitt fengi að hitta börnin undir eftirliti, ef hann myndi fallast á að gangast undir áfengis- og eiturlyfjapróf.