Auglýsing

Bjó Akureyrarkirkju til úr túrtöppum og færði söfnuðinum, hefur fengið heiðursstað í safnaðarheimilinu

Listakonan Jónborg Sigurðardóttir, eða Jonna, færði söfnuði Akureyrarkirkju listaverk í dag, kirkjuna sjálfa. Verkið er úr máluðum túrtöppum.

Sr. Hildur Eir Bolladóttir, prestur í kirkjunni, greinir frá gjöfinni á Facebook-síðu sinni.

„Við erum afar þakklát fyrir þessa glæsilegu gjöf sem hefur fengið heiðursstað í safnaðarheimilinu,“ skrifar Hildur Eir.

Samkvæmt boðum Jesú mótmælir kirkjan skammarmiðaðri umræðu um kvenlíkamann. Jesús dáðist að trú og hugrekki konunnar í Matteusarguðspjalli sem hafði haft blóðlát í 12 ár, hún snerti hann, hann snerti hana. Kvenlíkaminn er hvorki iðnaðar né söluvara.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing