Auglýsing

Tökur á myndinni Mihkel sem byggð er á líkfundarmálinu hefjast fljótlega, leikaraval staðfest

Tökur á kvikmyndinni Mihkel, sem byggð er á líkfundarmálinu í Neskaupsstað árið 2004, hefjast næsta mánudag, 14. nóvember.

Sagan fjallar um Mihkel og Veru, kærustu hans, sem dreymir um að flytja frá Eistlandi til Íslands. Óvæntir atburðir gerast sem hafa afdrifaríkar afleiðingar og enda með því að Mihkel er svikin af sínum besta og elsta vini.

Myndin verður að mestu tekin upp í Reykjavík en einnig eru fjórir tökudagar á Austfjörðum. Myndin verður frumsýnd haustið 2017.

61 pakkning af amfetamíni stíflaði mjógirni Litháns Vaidas Jucevicius

Grét­ar Sig­urðar­son, Jón­as Ingi Ragn­ars­son og Thom­as Mala­kauskas voru all­ir dæmd­ir í tveggja og hálfs árs fang­elsi fyrir þátt sinn í líkfundarmálinu. Þeir voru sakfelldir fyrir brot á lög­um um áv­ana- og fíkni­efni, brot vegna lífi og líkama og fyrir ósæmilega meðferð á líki, með því að hafa í ágóðaskyni, staðið að innflutningi á amfetamíni hingað til lands.

Litháinn Vaidas Jucevicius flutti 223,67 gr af afmetamíni til landsins innvortis. Lík hans fannst í höfninni í Neskaupsstað í febrúar árið 2005 en þar höfðu þeir Grétar, Jónas Ingi og Thomas komið því fyrir.

Jucevicius flutti efnið til lands­ins í 61 pakkn­ingu inn­vort­is í lík­ama sín­um, en veikst dag­inn eft­ir komu sína vegna stíflu í mjógirni af völd­um ­pakkn­ing­anna.

Létu Grét­ar, Jón­as Ingi og Mala­kauskas far­ast fyr­ir að koma Jucevicius til hjálp­ar og lést hann þrem­ur dög­um síðar. Fluttu þeir lík hans til Nes­kaupstaðar og sökktu því þar í sjó.

Aðalleikarar myndarinnar eru Paaru Oja (Frá Eistlandi ) sem fer með hlutverk Mihkels, Kasper Velberg (Frá Eistlandi) sem fer með hlutverk Igors, Atli Rafn Sigurðarson sem fer með hlutverk Jóhanns og Tómas Lemarquis  sem fer með hlutverk Bóbós.

Ari Alexander Ergis Magnússon er handritshöfundur og leikstýrir myndinni.

Framleiðendur myndarinnar eru Friðrik Þór Friðriksson, Kristinn Þórðarsson (Truenorth) og Leifur B. Dagfinnsson (Truenorth).

Meðframleiðendur eru Evelin Soosaar-Penttilä frá Eistlandi, Egil Ødegård frá Noregi

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing