Auglýsing

Tökur á Asíska draumnum hefjast í janúar, Auddi og Steindi mæta Sveppa og Pétri Jóhanni á ný

Tökur á sjónvarpsþættinum Asíski draumurinn hefjast í lok janúar. Þátturinn er framhald af Ameríska draumnum og Evrópska draumnum sem sýndir voru á Stöð 2 árin 2010 og 2012.

Auðunn Blöndal sagði frá Asíska draumnum á Twitter í dag

Í Ameríska draumnum leystu Auðunn Blöndal og Egill Gillz annars vegar og Sveppi og Villi hins vegar ýmsar þrautir á meðan þeir ferðuðust um Bandaríkin.

Í framhaldinu, Evrópska draumnum, var Steindi orðinn liðsfélagi Audda og Pétur Jóhann liðsfélagi Sveppa. Þeir ferðustu vítt og breytt um Evrópu og leystu þrautir.

Auddi og Steindi fóru meðal annars í fallhlífarstökk í Evrópska draumnum

Nútíminn hefur heimildir fyrir því að unnið sé að því að koma Sveppa og Pétri í svokallað Human Tetris í Japan. Það lítur svona út:

Áætlað er að sýna Asíska drauminn á Stöð 2 í vor.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing