Handritshöfundurinn, leikarinn og leikstjórinn Lena Dunham, sem er þekktust fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Girls, fagnar því að ekki hafi verið átt við appelsínuhúð hennar í myndvinnsluforriti áður en mynd af henni birtist á forsíðu nýjasta tölublaðs tímaritsins Glamour.
Dunham hefur í ötull talsmaður jákvæðrar líkamsmyndar síðustu ár.
Forsíðuna prýða Dunham, Allison Williams, Zosia Mamet og Jemima Kirke en þær leika allar í Girls.
Dunham er önnur frá hægri á myndinni. Hún segist vera stolt af því að læri hennar blasi við á forsíðu tímarits sem lesið af milljónum kvenna.
Fyrr á þessu ári kvartaði Dunham yfir því að spænskt tímarit hefði átt verulega við mynd af henni sem birt var í blaðinu. Blaðið hafnaði ásökunum hennar og dró hún þær til baka en sagði jafnframt að hún ætti „langa og flókna sögu“ af myndvinnsluforritum.