Skóparið sem fannst við athafnasvæði Atlantsolíu við Hvaleyrarlón í Hafnarfirði í gærkvöldi er í eigu Birnu Brjánsdóttir. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn staðfestir þetta í samtali við RÚV.
Grímur segir í samtali við Vísi að lögreglan hafi fengið til sín einstakling sem taldi sig geta staðfest að um skóna hennar Birnu væri að ræða. Til greina hefur komið að taka af þeim DNA-lífsýni en það getur verið tímafrekt að greina það.
Þá hefur tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu lagt hald á rauða Kia Rio bifreið sem starfsmaður fyrirtækis í Hlíðarsmára í Kópavogi tók á leigu í gær. Vísir greinir frá.
Vísir telur sig hafa öruggar heimildir fyrir því að erlendir ríkisborgarar hafi tekið bílinn á leigu seinni partinn á föstudag og skilað honum á laugardaginn.
Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn staðfestir í samtali við Nútímann að lögregla hafi lagt hald á rauða Kia Rio bifreið í tengslum við leitina að Birnu Brjánsdóttir. Hann vill ekki greina frá því hvort um bílaleigubíl sé að ræða eða bíl í einkaeigu.
Sjá einnig: Eftirlitsmyndavélar sýna Birnu á gangi eins síns liðs í miðbænum
Hann getur ekki staðfest að þetta sé bíllinn sem leitað hefur verið að en lýst var eftir bíl af þessari gerð í gær. Þá vill Grímur ekki útiloka að lögreglan muni leggja hald á fleiri bíla.
Líkt og áður hefur komið fram sást til rauðrar Kia Rio bifreiðar á eftirlitsmyndavél á Laugaveginum um það leyti sem Birna Brjánsdóttir sást síðast, eða kl. 5.25 aðfaranótt laugardags.
Grímur sagði í samtali við RÚV fyrr í dag að lögrelgan sé með tæmandi lista frá umboðinu yfir þessa gerð bíla og lit. Hann sé árgerð 2015 og fimm dyra, en um 126 bíla sér að ræða.