Auglýsing

Leitin að Birnu Brjánsdóttur: Viðburðaríkur dagur í rannsókn málsins útskýrður

Leitin að Birnu Brjánsdóttur hélt áfram í dag en ekkert hefur spurst til hennar frá því aðfaranótt laugardags. Víðtæk leit hefur staðið yfir síðustu daga.

Það sem við komumst að í dag

  • Fjórir skipverjar voru handteknir í dag. Tveir voru úrskurðuðir í gæsluvarðhald, einum var sleppt og sá fjórði var ekki handtekinn í tengslum við leitina að Birnu, heldur vegna fíkniefna sem fundust um borð í Polar Nanoq.
  • Fréttatíminn greinir frá því að lögreglan hafi sterkar vísbendingar um að þeir hafi unnið Birnu mein og vinnur eftir þeirri tilgátu.
  • Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem fer með rannsókn málsins, staðfestir í samtali við Vísi að lögreglan telji yfirgnæfandi líkur á því að skipverjarnir tveir hafi verið í rauða bílnum sem ekið var niður Laugaveginn um það leyti sem síðast sást til Birnu í eftirlitsmyndavélum.
  • Bíllinn sem skipverjarnir óku var sá sem dreginn var af bílastæði við Hlíðarsmára í Kópavogi á þriðjudag. Um er að ræða bílaleigubíl sem aðili ótengdur málinu var með á leigu þegar lögreglan gerði hann upptækan.
  • Vísir greinir frá því að lögreglan hafi fundið gögn sem benda til þess að misindisverk hafi verið framið í bílnum og samkvæmt Stundinni hafa gögnin verið send erlendis til greiningar.
  • Á mbl.is kemur fram að skipverjarnir tveir sjáist aka rauða bílnum að Polar Nanoq í Hafnafjarðarhöfn klukkan 6.10 á laugardagsmorgun.
  • 20 mínútum áður greindi mastur við Flatahraun í Hafnarfirði merki frá farsíma Birnu en skömmu síðar var slökkt á honum.
  • Heimildir mbl.is herma að mennirnir sjáist stíga út úr bílnum og ræðast við á bryggjunni í góða stund áður en annar þeirra fer upp í skipið. Hinn fer upp í bílinn og ekur út bryggjuna, stopppar við flotkvína í stutta stund áður en hann fer út af svæðinu. Hann sneri aftur um 45 mínútum síðar.
  • Bíllinn fór svo nokkrar ferðir til viðbótar út af hafnarsvæðinu áður en togarinn sigldi svo úr höfn um kvöldið.

Skipverjarnir voru yfirheyrðir í dag og í kvöld. Þeir neita báðir sök. Yfirheyrslur halda áfram á morgun

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing