Fyrir rúmri viku kom Birna Brjánsdóttir ekki heim. Síðan hefur hennar verið leitað.
Svona hefst færsla Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra Íslands, á Facebook þar sem hann vottar fjölskyldu og ástvinum Birnu Brjánsdóttur samúð sína.
Talið er að líkið sem fannst við Selvogsvita á Reykjanesi í dag sé Birna.
Sjá einnig: Telja líkur á að Birnu hafi verið ráðinn bani í bílnum, líkinu mögulega hent í sjónum á öðrum stað
„Lögreglan hefur unnið þrotlaust að rannsókn málsins, með aðstoð landhelgisgæslu og björgunarsveita. Með þakklæti höfum við fylgst með störfum þeirra. Þau hafa verið vönduð og yfirveguð, sem og samskipti þeirra við almenning og fjölmiðla.
Margir hafa lagt leitinni lið og veitt upplýsingar. Þetta sorglega mál hefur snert þjóðina, hreyft við okkur öllum og saman höfum við vonað að það fengi ekki þennan endi. En nú er Birna fundin og við sameinumst í sorginni.
Ég votta fjölskyldu og ástvinum Birnu samúð mína,“ segir í færslu Bjarna.