Auglýsing

Eini Íslendingurinn sem starfar við SKAM segir að vinsældir þáttanna séu engin tilviljun

Viðar Hákon Gíslason, hljóðmaður hjá norska ríkisútvarpinu, hefur starfað við tökur á þáttunum SKAM sem hafa slegið í gegn á Íslandi og víðar. Hann segir að Noregur finni vel fyrir vinsældum þáttanna á Íslandi sem og víðar en til stendur að endurgera þættina í Bandaríkjunum.

Sjá einnig: NRK lokar á SKAM fyrir aðdáendur utan Noregs, vinsældir þáttanna reyndust of miklar

Í samtali við Nútímann segir Viðar að Norðmenn finni mikið fyrir vinsældum þáttanna. „SKAM hafa vakið mikla athygli á Norðurlöndunum og England og Þýskaland eru einnig byrjuð að sýna þáttunum mikinn áhuga,“ segir hann.

Rétturinn af SKAM hefur líka verið seldur til Bandaríkjanna og þeir ætla að fara í það að gera bandaríska útgáfu af þáttunum. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þeir vinna þættina.

Viðar segir að vinsældir þáttanna séu ekki tilviljun. „NRK lögðu mikinn undirbúning í þættina og fóru í mikla rannsóknarvinnu þar sem heimur þessa aldurshóps var skoðaður. Þau vildu reyna enduspegla þennan veruleika sem best,“ segir hann.

Myndband: Menntaskólanemar um SKAM

Viðar segir að líklegasta ástæðan fyrir vinsældum þáttanna hér á landi sé hversu raunverulegir þeir eru. „Fólk sér sjálft sig í mörgum af persónum þáttanna og í þeim er verið að takast á við hluti og vandamál sem margir þekkja,“ segir hann.

„Þættirnir eiga að uppræta fordóma í samfélaginu og fjalla um þá skömm, líkt og þættirnir heita, sem er þar til staðar. Í annarri seríu voru krakkarnir sem leika í SKAM meira að segja farnir að efast um hvort þeir vildu framleiða aðra seríu þar sem heimur þeirra var orðinn svo opinn fyrir foreldrum þeirra.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing