Ingibjörg Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur í Sisimiut á Grænlandi, fann fyrir samhug grænlensku þjóðarinnar og sorginni sem fyllti þau yfir því að landsmenn þeirra séu í varðhaldi grunaðir um morðið á Birnu Brjánsdóttur. Þetta kemur fram í pistli Ingibjargar á Kalaks, vinafélags Grænlands og Íslands.
Í pistlinum rifjar Ingibjörg upp hvernig var að alast upp á Íslandi á níunda áratugnum og ber það saman við Grænland samtímans. „Ofbeldi gegn konum og börnum var ekki rætt nema í hálfum hljóðum og oftar en ekki mátti skilja sem svo að fórnarlömbin gætu sjálfum sér um kennt,“ segir hún í pistlinum.
„Síðan er liðin meira en þrjátíu ár, næstum fjörutíu og margt er orðið miklu betra en var. Við erum orðin betri í að tala um hlutina, láta hátt og segja það sem okkur finnst, grípa inní og skipta okkur af. Það er enn þannig að konur og börn eru fórnarlömb misyndismanna bæði inni á heimilium og utan þeirra, en ég trúi því að samfélagið sé fljótar að grípa inn í dag, og segja hátt að ofbeldi sé ekki í boði.“
Ingibjörg segir að í Grænlandi sé þögnin áþreifanleg þegar kemur að ofbeldi gegn konum og börnum. „Á Grænlandi minnir margt á það sem var þegar ég var barn í Breiðholtinu. Því miður er ekki talað hátt um fjölskylduharmleiki, eins og ofbeldi innan veggja heimilisins er stundum kallað,“ segir hún.
„Í starfi mínu sem hjúkrunarfræðingur hitti ég reglulega konur sem hafa verið lamdar og sem hefur verið nauðgað, af mönnum sínum, vinum, kunningjum eða ókunnugum. Það eru aldrei fluttar fréttir af ofbeldismálum.“
Ingibjörg rifjar upp þegar hún heyrði hræðilegar örlagasögur forfeðra sinna og vina sinna sem barn og segist upplifa þessa sögu í Grænlandi. „Ég hitti konur sem hafa gefið frá sér börn og börn sem hafa verið fjarlægð af heimilum og komið í fóstur, ég hugga samstarfskonu sem missti dóttur sína viku fyrir jól, hún var sextán ára og hengdi sig. Ég fylgist með leit að litlum mótorbát sem á sigldi ungur maður í ofsaveðri, hann var að rífast við kærustuna sína, hún gerði tilraun til þess að hengja sig þegar útséð var um að hann fyndist. Ég les um þrjár konur sem misstu lífið á Austurströnd Grænlands í fyrstu viku þessa árs, tvær fyrir eigin hendi, sú þriðja var myrt.“
Ingibjörg telur að hörmulegur dauðdagi Birnu Brjánsdóttur muni breyta því hvernig grænlensk þjóð taki á ofbeldi gegn konum og börnum. „Ég vona að öll sú umræða sem verið hefur um málið og sú samkennd sem fólk hér hefur fundið með aðstandendum Birnu á Íslandi festi rætur hér í landi og geri grænlensku þjóðinni kleyft að ræða ofbeldismál opinskátt, að segja af þeim fréttir og láta vita að ofbeldi er ekki í boði aldrei,“ segir hún.
„Orð eru til margs vís, Grænlendingar hafa ekki verið orðmargir um þær hörmungar sem hafa dunið á þeim, en nú sjá þeir hjá nágrönnum sínum í austri að orð geta læknað og orð geta breytt. Ég vona að hörmulegur dauðdagi ungrar konu á Íslandi geti haft það í för með sér að grænlensk þjóð taki á þöggun um ofbeldi og misnotkun og leyfi sér að tala opinskátt um hlutina og vinna þannig á þjóðarmeinum.“
Smelltu hér til að lesa pistil Ingibjargar.