Handknattleiksdeild Hauka hefur kært úrslitin úr leik Selfoss og Hauka í Olís-deild kvenna sem fór fram á miðvikudagskvöld og vilja að leikurinn verði spilaður aftur. Selfoss vann leikinn 28:25.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skoraði 13 mörk fyrir Selfoss í leiknum. Þegar tæpar tvær mínútur voru eftir af leiknum braust hún í gegnum vörn Hauka og rifnaði treyja hennar í átökunum.
Hún spilar í treyju númer 4 en þar sem engin aukatreyja var til með því númeri var til takst spilaði hún lokamínútuna í treyju númer 3. Haukar telja að þetta hafi verið brotlegt og hafa kært atvikið til dómstóls HSÍ
„Auðvitað er um smámál að ræða sem hefur engin áhrif hefur á úrslit leiksins en öllum er frjálst að leita réttar síns og verða viðbrögð okkar því að afla nauðsynlegra gagna og koma til dómstóls HSÍ,“ sagði Magnús Matthíasson, formaður handknattleiksdeildar Selfoss, í samtali við Sunnlenska.
Félagið fær það óþvegið frá notendum Twitter sem segja kæruna meðal annars vera glórulausa, fáranlega og sorglegustu kæruna í sögu íslenskra íþrótta.
Þetta er glórulaust!
Þessi Hauka kæra er glórulaus. Haukar rífa treyjuna hjá andstæðingi og kæra svo fyrir að leikmaðurinn noti aðra treyju. Rífið ykkur í gang!
— Magnús Már Einarsson (@maggimar) January 27, 2017
Sorglegasta kæra í íslenskri íþróttasögu?
Ætli stuðningsmenn Hauka séu ekki almennt stoltir af félaginu í kjölfar þessarar kæru? Líklega sorglegasta kæra í sögu íþrótta hér á landi.
— Einar Matthías (@einarmatt) January 27, 2017
Landsliðsmaðurinn Rúnar Kárason blandar sér í umræðuna
afhverju er ekki víti og tvær? eiga Haukar að hagnast á peysutogi, fáranleg kæra
— Rúnar Kárason (@runarkarason) January 27, 2017
Jafnvel þó að þetta sé tæknilega hægt…
Jafnvel þó þetta sé tæknilega hægt, Haukar, have some dignity https://t.co/96MfkRed2E
— Ásgeir Jónsson (@sonurjons) January 27, 2017
Nei, það er enn janúar…
Haukar kæra tapleik og vilja spila aftur – mbl.is via @mblfrettir Er kominn 1. apríl? #fáránlegt #handbolti
— Lárus Helgi Ólafsson (@Lallihelgi) January 27, 2017
Í frétt Sunnlenska segir að niðurstaða í málinu ætti að liggja fyrir fyrir eða eftir næstu helgi, eða eftir rúma viku.