Auglýsing

Farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir öðrum skipverjanum, hinum sleppt úr haldi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hyggst fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir öðrum skipverjanum sem grunaður er í máli Birnu Brjánsdóttur. Þetta kemur fram á Vísi. Gæsluvarðhaldið yfir mönnunum tveimur rennur út í dag en þeir hafa verið í eingangrun í fjórtán daga.

Vísir hefur eftir Grími Grímssyni, yfirlögregluþjóni sem stýrir rannsókn málsins, að hinum skipverjanum verði sleppt í dag. Einnig kemur fram að hann hafi þó enn réttarstöðu grunaðs manns í málinu en að lögreglan telji ekki þörf á að hafa hann lengur í gæsluvarðhaldi.

Á vef DV kemur fram að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir Thomas Frederik Møller Olsen og Nikolaj Olsen verði sleppt í dag.cThomas er sá sem sést aka út af hafnarsvæðinu klukkan sjö, morguninn sem Birna hvarf. Lögreglu hefur ekki tekist að rekja ferðir bílsins frá þeim tíma og til klukkan 11.

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing