Valentínusardagurinn er runninn upp. Kamilla Einarsdóttir hefur sent vinum sínum, barþjónum og pítsusendlum kort á þessum degi í nokkur ár.
Tinna Björk, útsendari Nútímans, ræddi við hana í gær þegar hún var að leggja lokahönd á kortin og fékk að skoða úrvalið.
„Sumir vilja þetta ekki af því að þeim finnst þetta svo væmið. Þá þarf ég bara að troða þessu inn í vasana þeirra. Morgundagurinn fer bara í þetta,“ segir Kamilla.
Og það eru ekki aðeins vinir hennar sem fá kort.
„Þetta getur líka verið handa pítsusendlum og uppáhalds barþjónum eða eitthvað. Margir þeirra eiga miklu stærri part af hjarta manns en einhverjir sem þú ert kannski að sofa hjá í nokkrar vikur,“ segir hún.