Meistarakokkurinn Matthias Merges á varla orð til að lýsa íslenska sviðakjammanum sem hann segir afar gómsætan. „Íslenska lambakjötið er það besta sem ég hef smakkað,“ segir hann í þættinum Það er kominn matur! sem hefur göngu sína í Sjónvarpi Símans í kvöld. Sjáðu brot úr þættinum hér fyrir ofan.
Matthias er eigandi átta veitingastaða í Chicago og Las Vegas í Bandaríkjunum. Hann kom til landsins á vegum Food and Fun hátíðarinnar í fyrra og var einnig fenginn til að kryfja sviðakjammann í þættinum.
„Hvort sem þú ert að elda kind, kú eða kind þá þarftu að nýta alla skepnuna. Allt. Það er mjög mikilvægt. Þú þarft að bera virðingu fyrir allri skepnunni,“ segir Matthias í þættinum. Tungan er í miklu uppáhaldi hjá honum ásamt auganu.