Auglýsing

Grínistinn Ricky Gervais á leiðinni til landsins, verður með uppistand í Hörpu í apríl

Ricky Gervais, einn vinsælasti uppistandari heims, er á leiðinni til landsins með uppistandið Humanity. Hann kemur fram í Hörpu 20. apríl næstkomandi. Þetta kemur fram á Facebook-síðu grínistans en RÚV greinir einnig frá málinu.

RÚV greinir frá því að Sena Live standi fyrir komu Gervais til landsins og að miðasala hefjist eftir viku.

Gervais er heimsfrægur fyrir hlutverk sitt í The Office sem voru endurgerðir eftirminnilega í Bandaríkjunum með Steve Carrell í aðalhlutverki. Hann hefur tekið skemmtanabransann í Hollywood í gegn sem kynnir á Golden Globes verðlaununum. Hér má sjá brot af því.

https://www.youtube.com/watch?v=xI1BIiDfer4

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing