Eins og íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa vafalaust tekið eftir er veðrið búið að vera ansi leiðinlegt í kvöld. Flauta þurfti af leik Fram og Breiðabliks í Lengjubikarnum eftir 70 mínútna leik vegna veðursins en þá var staðan 1-0 fyrir Breiðablik.
Breiðablik birti þetta skemmtilega myndband á Twitter sem sýndi stemninguna á bekknum.
Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan
Dómarinn er búinn að gera hlé á leik Fram og Breiðabliks #fotboltinet pic.twitter.com/vY6Fp0kRaR
— Blikar.is (@blikar_is) March 23, 2017