Auglýsing

Blaðamaður Viðskiptablaðsins lét blekkjast af aprílgabbi mbl.is, skrifaði frétt um svar IKEA við Costco

Viðskiptablaðið lét blekkjast af aprílgabbi mbl.is í ár. Um er að ræða frétt þar sem segir frá meintum viðbrögðum IKEA við komu Costco til landsins. Vísir greinir frá þessu.

Hér getur þú séð aprílgabb Nútímans í ár.

Í fréttinni er rætt við Þórarinn Ævarsson, forstjóra IKEA á Íslandi. Hann segir nauðsynlegt fyrir fyrirtækið að mæta harðnandi samkeppni og því hafi IKEA ákveðið að byrja sjálft að bjóða upp á einstakling- og fyrirtækjaaðild líkt og Costco. Neðst í fréttinni geta áhugasamir sótt um aðild að svokölluðum IKEA-klúbbi.

Blaðamanni Viðskiptablaðsins þótti þessi þróun fréttnæm og birti frétt um hana. Hún hefur nú verið fjarlægð.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing