Auglýsing

Halda áfram að taka fjölskyldumynd með syninum nokkrum árum eftir skilnaðinn

Victoria Baldwin og Adam Dyson skildu fyrir nokkrum árum. Þrátt fyrir það hafa þau haldið áfram að láta taka af sér fjölskyldumynd með fjögurra ára syni þeirra, Bruce. Baldwin sagði frá þessu í færslu á Facebook sem hefur vakið mikla athygli og ljóst er að sitt sýnist hverjum.

Í færslunni sem birt var á Facebook-síðunni Love What Matters sagði Baldwin þau hjónin hefðu látið taka mynd af sér saman þegar drengurinn var enn í maganum á henni.

Eftir að Bruce kom í heiminn héldu foreldrarnir í hefðina og létu reglulega taka fjölskyldumyndir. Dag einn, eftir að þau höfðu slitið samvistum og Baldwin var á leiðinni með drenginn í myndatöku, bauð hún Dyson með svo hann gæti líka fengið mynd af sér með syninum, líkt og kemur fram í frétt CNN um málið.

„Við erum ekki ástfangin, við erum ekki alltaf sammála, við erum ekki bestu vinir, stundum líkar okkur jafnvel ekki hvort við annað,“ sagði Baldwin í færslunni. „En veist þú hvað við erum? Við erum tengd að eilífu fallega, klára, ljúfa og fyndna syni okkar.“

Færslan hefur eins og áður sagði vakið gífurleg viðbrögð. Margar mömmur sem hafa farið í gegnum skilnað hafa haft samband við Baldwin og vilja feta í fótspor fjölskyldunnar, eða gera eitthvað til að bæta sambandið við barnsföðurinn.

Sumir telja aftur á móti að foreldrarnir séu að skemma eða rugla drenginn í ríminu og hafa látið Baldwin heyra það.

Hér má sjá færsluna

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing