Auglýsing

Gæi tekur sér hlé frá Snapchat af persónulegum ástæðum og biður fólk að hafa ekki áhyggjur

Garðar Viðarsson, betur þekktur sem Gæi, ein vinsælasta snappari landsins ætlar að taka sér smá hlé frá Snapchat.

Hann segir í samtali við Nútímann að hléið sé bæði af persónulegum ástæðum en einnig vegna þess að áreitið sem fylgi því að vera opinber persóna sé orðið mikið. Hann er ekki búinn að ákveða hversu langt hléið verður en segir að það sé óþarfi að hafa áhyggjur af honum.

Gæi kallar sig Iceredneck á Snapchat og hefur sópað að sér fylgjendum þar. Hann hafði notið töluverða vinsælda á samfélagsmiðlunum sem jukust síðan gífurlega þegar hann fór í frí til Tenerife.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing