Auglýsing

Fyrsti trampólíngarðurinn á Íslandi verður opnaður í haust

Fyrsti trampólíngarðurinn verður opnaður hér á landi í haust. Hann verður í 2.500 fermetra húsi í Garðabæ en garðurinn er í samstarfi við Rush Parks.

Staðurinn mun meðal annars bjóða upp á skotboltadeild, slam dunk trampólín og  trampólín fitness. Salurinn verður sérstaklega innréttaður með löngum trampólínbrautum, trampólínveggjum og svampgryfju. Þar verða alls kyns tæki.

Í tilkynningu segir að Rush á Íslandi verði hluti af alþjóðlegri keðju af trampólíngörðum sem Rush Extream Sports of USA rekur víða um heim.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing