Hljómsveitin Between Mountains, sem sigraði Músíktilraunir í ár, hefur sent frá sér sína fyrstu smáskífu með laginu Little Sunny Flower. Hlustaðu á lagið hér fyrir neðan.
Hljómsveitina skipa Katla Vigdís Vernharðsdóttir og Ásrós Helga Guðmundsdóttir. Þær eru fjórtán og sextán ára vinkonur frá Vestfjörðum. Þær voru einnig valdar söngvarar kvöldsins.
Between Mountains var stofnuð í byrjun mars til að taka þátt í Söngkeppni Samfés og í framhaldi Músíktilraunum. Katla semur lögin og textana fyrir hljómsveitina, hún spilar á hljómborð og syngur, Ásrós syngur í hljómsveitinni og spilar inn á milli á xylófón.
Katla Vigdís og Ásrós Helga spila á Aldrei fór ég Suður á Ísafirði um páskana og á Iceland Airwaves í haust.