Háværar kynlífsstunur trufluðu tennisleik í Sarasota í Bandaríkjunum á þriðjudagskvöld. Horfðu á spaugilegt myndband frá leiknum hér fyrir neðan.
Frances Tiafoe og Mitchell Krueger áttust við og leikurinn var kominn vel af stað þegar stunurnar byrjuðu að óma, svo hátt að allir tóku eftir. Þulurinn í sjónvarpsútsendingu hélt í fyrstu að um myndband í síma væri að ræða en síðar kom í ljós að par í nærliggjandi íbúð naut þess að stunda kynlíf með þessum truflandi afleiðingum.
Stunurnar gengu á í bylgjum ef svo má að orði komast og þegar þær hófust á ný í eitt skiptið hrópaði annar Frances Tiafoe: „Þetta getur ekki verið svona gott!“ og uppskar hlátur áhorfenda.
Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan
https://youtu.be/jVfZJFNYF0s