Eins og fjölmiðlar greindu frá í gær þá kom hljómsveitin Kaleo fram í spjallþætti James Corden á þriðjudagskvöld. Strákarnir í Kaleo voru hins vegar ekki einu Íslendingarnir á svæðinu því þau sem horfðu á þáttinn í Sjónvarpi Símans í gærkvöldi tóku eftir öðru kunnuglegu andliti.
Sjá einnig: Kaleo sló í gegn hjá James Corden og Jökull spilaði í landsliðstreyjunni
Fjölmiðlamaðurinn Fannar Sveinsson var staddur í salnum ásamt Valgerði, kærustunni sinni. Horfði á myndbandið hér fyrir ofan.
Þetta er auðvitað ekki frétt sem skiptir miklu máli í stóra samhenginu en okkur fannst þau svo fyndin þarna bakvið að við máttum til með að klippa saman stutt myndband.