Gunnar Nelson er ekki bara þekktur fyrir hæfileika sína á sviði blandaðra bardagalista. Hann er einnig þekktur fyrir að vera ekkert sérstaklega duglegur við að flagga tilfinningum sínum.
Hann er raunar heimsþekktur fyrir það og myndir á borð við þessa njóta talsverðra vinsælda
Það hljóta því að teljast ákveðin tíðindi að sjá hann sýna tilfinningar. Rétt í þessu birti Gunnar myndband á Instagram þar sem ökuþórinn Kristján Einar Kristjánsson fer með hann á rúntinn.
Þetta er þó enginn venjulegur rúntur — eins og myndbandið sýnir. „Hérna eru tilfinningar handa ykkur,“ segir Gunnar við aðdáendur sína á Instagram.