Auglýsing

Hljómsveitin The xx heldur tónlistarhátíð við Skógafoss í sumar

Hljómsveitin The xx stendur fyrir tónlistarhátíðinni Night + Day við Skógafoss dagana 14. – 16. júlí í sumar. Ásamt sveitinni mun fjöldi annarra listamanna koma fram á hátíðinni, þar á meðal Mr. Silla, Kamasi Washinton, Högni, Earl Sweatshirt, Robyn og Mr. Tophat og Call Super.

Sveitin greinir frá þessu á Facebook en aðdáendur hennar höfðu beðið spenntir eftir fréttum eftir að myndskeið af Skógarfossi var birt á síðunni í gær. Miðinn fyrir helgina kostar 169 evrur, eða tæplega 20 þúsund íslenskar krónur. Fyrir það fá gestir aðgang að tónleikasvæðinu og gistingu á tjaldstæðinu.

Í færslunni segir að hljómsveitarmeðlimir The xx hafi fallið fyrir Íslandi þegar þau voru þar fyrir nokkrum árum og nú geti þau ekki beðið eftir að snúa aftur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing