Úkraínska söngkonan Jamala steig á svið í Kænugarði í Úkraínu í kvöld og skemmti áhorfendum á meðan beðið var eftir stigunum. Einn af áhorfendunum virðist hafa stokkið upp á sviðið, með ástralska fánann vafinn um sig, sneri baki í myndavélina og dró niður buxurnar. Hann var fljótlega dreginn niður af sviðinu.
Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.