Björgvin Halldórsson, eða Bó, kynnti stig íslensku dómnefndarinnar í Eurovision í kvöld. Hann virðist hafa ákveðið að koma lúmskt á framfæri óánægju sinni með að Svala, dóttir hans, hafi ekki komist áfram í lokakeppnina með framlag Íslands, Paper.
Bó var með appelsínugula nælu með fýlukalli nælda í barminn og kom skilaboðum sínum þannig á framfæri. Bó skilaði sínu vel og færði Portúgal tólf stig.
pabbi gamli með fáránlega sætt statement pin #12stig pic.twitter.com/yEDeYVw9AW
— Berglind Festival (@ergblind) May 13, 2017
Eruð þið tilbúinn? Þessi er klár! #Boísparifötunum #12stig pic.twitter.com/pIF8OFm2aq
— Þórður Helgi Þórðar (@Doddilitli) May 13, 2017