Auglýsing

Bíl ekið upp á gangstétt á Times Square: Einn látinn, að minnsta kosti tíu slasaðir

Einn er látinn og að minnsta kosti tíu eru slasaðir eftir að bíl var ekið inn á gangstétt á Times Square í New York í Bandaríkjunum. Margir voru á gangstéttinni þegar atvikið átti sér stað. Ökumaður bílsins er í haldi lögreglu og búið er að girða svæðið af.

Utanríkisráðuneytið hefur beðið Íslendinga í New York beðnir að láta ættingja eða vini vita af sér. Ef aðstoðar er þörf er hægt að hafa samband við neyðarsíma ráðuneytisins +354 545 9900 sem er opinn allan sólarhringinn. Þau sem eru stödd í borginni eru beðin um að virða lokanir og fara að tilmælum yfirvalda.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing