Auglýsing

Lokaballi Versló aflýst vegna dræmrar miðasölu

Lokaballi Verslunarskólans sem átti að fara fram á morgun hefur verið aflýst vegna dræmrar miðasölu. Nemendum var tilkynnt þetta í dag. Ballið átti að fara fram í Hörpu og áttu DJ Snorri Ástráðs, Arnór „fokking“ Björnsson ft. Doktor Lazer og DJ Jay-O að leika fyrir dansi.

Sjá einnig: Nemendafélag Versló afbókar DJ Muscleboy vegna þrýsting frá femínistafélaginu

Umrætt ball hefur verið mikið í fréttum undanfarna daga eftir að plötusnúðurinn DJ Muscleboy, eða Egill Einarsson, var afbókaður eftir þrýsting frá nemendum skólans. Nemendum var þá tilkynnt að Áttan myndi koma fram í stað Egils en skömmu síðar lýsti Nökkvi Fjalar, forsprakki Áttunnar, yfir að þau myndu ekki koma fram í hans stað.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing