Auglýsing

Vilborg Arna segir síðustu sólarhringa verið þá erfiðustu sem hún hefur upplifað

Vilborg Arna Gissurardóttir segir að síðustu sólarhringar hafi verið þeir mögnuðustu og erfiðustu sem hún hefur upplifað. Hún segir að það hafi verið ólýsanlegt að standa á toppi veraldar og horfa yfir heiminn. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu hennar

Vilborg komst loksins á topp Everest um helgina eftir að hafa tvisvar sinnum áður reynt að komast á toppinn. Árið 2013 var hún í grunnbúðunum þegar snjóðflóð féll og sextán manns létust. Árið 2015 var hún einnig komin í grunnubúðirnar þegar mannskæður jarðskjálfti stöðvaði för hennar.

Hún dvelur nú í grunnbúðum fjallsins og segist enn vera að meðtaka þetta allt saman.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing