Myndband sem sýnir kornabarn stíga nokkur skref í höndum læknis skömmu eftir fæðinguna er að gera allt vitlaust á internetinu. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.
Búið er að horfa á myndbandið næstum því 100 milljón sinnum en það er frá sjúkrahúsi í Brasilíu. „Guð minn almáttugur, stelpan er að labba!“ segja viðstaddir á meðan sú nýfædda „labbar“.
Í frétt Huffington Post kemur fram að fljótlega hafi verið bent á að um fullkomlega eðlileg viðbrögð sé að ræða. Að taka þessi skref ku vera náttúrulegt viðbragð kornabarnsins og gerist ósjálfrátt.