Auglýsing

Ásta hafnar því að hafa skráð sig í Samfylkinguna, mætti síðast á þingflokksfund „um daginn“

Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, hafnar því alfarið að hafa skráð sig í Samfylkinguna líkt og Eiríkur Jónsson fullyrðir á vefsíðu sinni. Þar kemur fram að Ásta séð á leið úr flokknum og yfir í Samfylkinguna og það verði tilkynnt á allra næstu dögum.

Ásta var ekki lengi að bregðast við fréttinni og í færslu á Facebook-síðu hennar segir: „Orðrómur um að ég sé gengin í Samfylkinguna er bull.“

Eiríkur fullyrðir einnig að Ásta hafi ekki verið velkomin á þingflokksfundi Pírata eftir að hún var sett af sem þingflokksformaður og þannig stillt upp við vegg.

Ásta segir í samtali við Nútímann að það ekki sé heldur ekki rétt. Hún segist þó ekki hafa sótt þingflokksfundi „eins og áður“ af persónulegum ástæðum. Aðspurð um hvenær hún mætti síðast á fund segir hún að það hafi verið „um daginn“, eða fyrir þinglok.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing