Mynd sem birtist með frétt RÚV um viðbrögð Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra í stóra seðlamálinu í dag hefur vakið talsverða athygli. Sér í lagi vegna þess að hárlitur Bjarna hefur gránað allverulega á undraskömmum tíma.
Á Twitter hefur fólk velt þessu fyrir sér
Fyrri tekin 19. júní – sú seinni 23. júní. Á sama stað, sama ár. Ekki sami maður, pic.twitter.com/ddFssOoKhk
— Vigdís DilJÁNEINEI (@viggodill) June 23, 2017
Í samtali við Nútímann þorir Bjarni ekki að fullyrða að ríkisstjórnarsamstarfið sé að gera hann gráhærðan heldur nýja klippingin. „Þegar ég fer í klippingu kemur grái karlinn upp í mér,“ segir hann léttur.
Sjálfur fær hann ávallt margar spurningar um hárlit sinn skömmu eftir klippingu. Þetta er því ekki í fyrsta skipti sem fólk veltir þessu fyrir sér. Bjarni hefur aldrei litað á sér hárið og hann segir að það standi ekki til að breyta um blæ. Hann segist hins vegar vona að frétt Nútímans lægi öldurnar í þessum efnum.