Auglýsing

Svaraði gagnrýni fyrir að gefa brjóst á Instagram: „Getur sogið á mér vinstra brjóstið!“

Leikkonan Christian Serratos, sem sjónvarpsáhorfendur þekkja úr þáttunum The Walking Dead, fékk yfir sig gusurnar frá notendum Instagram þegar hún birti mynd af sér að gefa dóttur sinni brjóst. Hún var ekki lengi að svara þeim sem létu þessa saklausu mynd fara fyrir brjóstið á sér.

Serratos birti þessa mynd hér og náði með henni að særa ofurviðkvæma fylgjendur sína á Instagram

Á meðal ummæla sem fólk skildi eftir var að myndbirtingin væri fáránleg, að sumt ætti heima bakvið luktar dyr og að engin ástæða væri til að birta svona mynd. Þessu tók Serratos ekki þegjandi og hljóðlaust og tók nýja mynd til að birta á samfélagsmiðlinum vinsæla.

Nefnilega þessa mynd hér

Og skilaboðin sem fylgdu myndinni voru skýr: „Þetta er líkaminn minn og síðan mín. Ég birti það sem ég vil þegar ég vil. Ef einhver hefur eitthvað á móti því getur viðkomandi sogið á mér vinstra brjóstið.“

Og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Í þetta skipti voru jákvæðir í meirihluta. „Ánægjulegt að sjá að þú látir ekki segja þér fyrir verkum. Þinn líkami, þinn aðgangur. Ég er aðdáandi og var ekki byrjuð að fylgja þér á Instagram. Eftir að hafa lesið etta svar þitt ertu hins vegar búin að bæta nýjum fylgjanda í safnið,“ sagði gríðarlega ánægður aðdáandi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing