Eldur kom upp á aðalsviði tónlistarhátíðarinnar, Tomorrowland í gærkvöldi. Engin meiðsl urðu á fólki en flytja þurfti um tuttugu og tvö þúsund manns á brott meðan verið var að ráða niðurlögum eldsins. Hátíðin er haldin í Santa Coloma de Gramenet, nálægt borginni Barcelona.
Búið er að slökkva allan eld en á vefsíðu hátíðarinnar kemur fram að tæknileg bilun hafi valdið brunanum.