Hin tvítuga Lauren hefur svo sannarlega húmorinn á réttum stað en hún lenti í því fyrir ári síðan að missa handlegg í móturhjólaslysi. Etir slysið varð Lauren mjög virk á Twitter þar sem hún gerir óspart grín að sjálfri sér eins og sjá má hér að neðan.
i was in the ocean and this lil kids like "what happened to ur arm" and i told him it was a shark and he ran out and has yet to get back in
— Duck (@DuckFanAccount) July 21, 2017
I lost my arm you dick pic.twitter.com/UgjWK7kkwI
— Duck (@DuckFanAccount) August 29, 2016
so i found my dog twin named thor pic.twitter.com/tGP6MkkL2g
— Duck (@DuckFanAccount) May 9, 2017
Fyrir viku síðan ákvað hún að búa sér til aðgang á stefnumótaforritinu Tinder þar sem hún gerir stólpagrín að sjálfri sér og þeirri staðreynd að hún sé aðeins með eina hendi. Í viðtali við Huffington Post segist hún hafa fengið mjög mörg „matches“ en á Tinder gerist það þegar fólk hefur gefið hvort öðru læk en það er ekki fyrr en þá sem það getur spjallað saman í appinu. Hún segist þó ekki ætla sér að fara á stefnumót í kjölfarið.
En ég er bara að skemmta mér og hef engan áhuga á því að hitta neinn.
Lauren bætti því við að hún hefði stundum fengið leiðinlegar athugasemdir frá fólki á netinu en það hafi bara styrkt hana. Hún segir flesta hafa staðið við bakið á sér og hvatt sig áfram. „Það sýndi mér að fólki finnst ég ennþá falleg og það að missa hendi gerir mig ekki að verri manneskju,“ sagði Lauren.